Fara beint í efni

9.6.2026

Góði hirðirinn opnar á Breiðhellu

Góði hirðirinn opnar á Breiðhellu

Áhersla á framkvæmdarefni

Mánudaginn 1. júní opnaði ný verslun Góða hirðisins á Breiðhellu. Mikil eftirvænting hefur verið eftir opnuninni og var strax byrjað að mæta kl 11:00.
Verslunin mun vera með sérstakla áherslu á framkvæmdarefni, t.d. verkfæri, hurðar, vaska og fleira.

Við erum ótrúlega ánægð með þessa viðbót og þau jákvæðu viðbrögð sem hafa verið við opnunina.

Verslunin er opin frá kl 11:00-15:00 alla virka daga og er staðsett á Endurvinnslustöð SORPU Breiðhellu 8-10, 221 Hafnarfirði.